Skólaval – innritun nemenda í 1. bekk grunnskóla 2019.

Í febrúarmánuði fer fram innritun nemenda sem hefja nám í 1. bekk í grunnskólum Akureyrar haustið 2019.

Í tengslum við innritun nemenda verður Oddeyrarskóli með opið hús miðvikudaginn 13. febrúar kl. 9:00 – 11:00 og eru foreldrar hvattir til að koma og kynna sér skólann.

Skila þarf inn umsókn á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Á heimasíðu fræðslusviðs, má finna allar upplýsingar um skólaval á Akureyri.

Síðast uppfært 08.02 2019