Stjórn foreldrafélags Oddeyrarskóla samanstendur af a.m.k. einum bekkjarfulltrúa úr hverjum árgangi skólans og er því stjórn skipuð að lágmarki 10 fulltrúum. Skólaárið 2024-2025 er stjórn skipuð eftirfarandi fulltrúum:
Formaður: Nanna Rut Guðmundsdóttir
Gjaldkeri: Bryndís Vilhjálmsdóttir
Ritari: Freydís Þorvaldsdóttir
Meðstjórnendur: Sigríður Ásta Pedersen, An-Katrien P.M. Lecluyse, Guðný Halla Jónsdóttir, Kristín Þorgeirsdóttir, Ragnar Elías Ólafsson, Eísa Rut Guðmundsdóttir og Hulda Jónsdóttir.
- Félagið heitir Foreldrafélag Oddeyrarskóla. Heimili þess og varnarþing er á Akureyri.
Heimilt er að innheimta félagsgjald að hausti sem ákveða skal á aðalfundi.
-
- Foreldrar og forráðamenn nemenda í skólanum verða sjálfkrafa meðlimir félagsins, nema þeir óski annars.
- Tilgangur félagsins er:
-
-
- Að efla samskipti skólans og foreldra/forráðamanna þeirra barna er þar stunda nám.
- Að veita aðstoð í skólastarfinu, þ.á.m. við félagsstörf nemenda.
-
- Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því m.a.:
-
- Að halda fundi um ýmis uppeldisfræðileg efni.
- Að veita aðstoð í skólastarfinu, þ.á.m. við félagsstörf nemenda.
- Að standa að eða styðja menningarlíf innan skólans, svo og annað sem að gagni getur komið fyrir skólann og nemendur hans.
- Bekkjarráð er skipað minnst tveimur fulltrúum úr hverri bekkjardeild. Bekkjarráð skal starfa við undirbúning og framkvæmd sérstakra verkefna þar sem þörf er á samstilltu átaki foreldra/forráðamanna, kennara og nemenda. Bekkjaráðsfulltrúar hverrar bekkjardeildar sjá um í samvinnu við umsjónarkennara að minnst tveir foreldrar/forráðamenn úr hverri bekkjardeild taki sæti í bekkjarráði í upphafi skólaárs.
- Aðalfund félagsins skal halda í október ár hvert. Hann skal boðaður skriflega með a.m.k. 5 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef boðað er til hans á réttan hátt.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Skýrsla formanns um störf félagsins og umræða um hana.
- Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga.
- Umræða og atkvæðagreiðsla um reikninga.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Skipun tveggja fulltrúa í skólaráð í samráði við skólastjórnendur.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Önnur mál.
- Í stjórn félagsins situr einn fulltrúi úr hverju bekkjarráði. Heimilt er þó að tveir fulltrúar komi til fyrir hönd bekkjaráðs í stjórn sé fyrir því áhugi eða aðstæður eru fyrir hendi. Ávallt skal hluti stjórnar sitja í a.m.k. tvö ár. Stjórnin skiptir með sér störfum og velur einn fulltrúa úr stjórn í fulltrúaráð foreldrafélaga í bænum. Fráfarandi formaður skal kalla nýkjörna stjórn saman til fyrsta fundar eigi síðar en 10 dögum eftir aðalfund. Skólastjóri eða staðgengill hans hefur seturétt á stjórnarfundum félagsins með málfrelsi og tillögurétt. Skal hann boðaður á sama hátt og stjórnarmenn.
- Stjórn félagsins skal halda minnst tvo almenna félagsfundi árlega.
- Stjórn félagsins skal ekki sinna klögumálum eða hafa afskipti af vandamálum sem upp kunna að koma milli einstakra foreldra og starfsmanna skólans.
- Ef 20 félagsmenn eða fleiri óska eftir með undirskrift að haldinn verði félagsfundur eða auka-aðalfundur er stjórninni skylt að verða við þeirri ósk.
- Slíkan fund skal boða á sama hátt og aðalfund innan hálfs mánaðar frá því að óskin kemur fram. Lög foreldrafélags Oddeyrarskóla
- Félagið má aðeins leysa upp, að ⅔ hlutar fundarmanna greiði því atkvæði á aðalfundi, enda skuli vera tillaga um það í fundarboði. Skulu þá eignir félagsins renna til Oddeyrarskóla.
Svohljóðandi lög félagsins voru samþykkt á aðalfundi félagsins þann 4. október 2012
Bekkjarfulltrúar í Oddeyrarskóla 2024-2025
Bekkjarfulltrúar í Oddeyrarskóla 2023-2024
Brkkjarfulltrúar í Oddeyrarskóla 2022-2023
Bekkjarfulltrúar í Oddeyrarskóla 2021-2022
Bekkjarfulltrúar í Oddeyrarskóla 2020-2021
Bekkjarfulltrúar í Oddeyrarskóla 2019-2020