Öryggis- og slysavarnir

Handbók um velferð og öryggi barna í grunnskólum

Handbókin er unnin í samvinnu mennta- og menningarmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga með hliðsjón af reglugerð nr. 657/2009 um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða. Handbókina má nýta í heild sinni eða nýta þá þætti sem henta hverju sinni.

Notendur 
Handbókin er fyrst og fremst ætluð sem uppflettirit til að auðvelda notendum að fylgja eftir þeim lögum og reglugerðum sem gilda um grunnskólann og umhverfi hans. Hún er  ætluð sveitarstjórnum, rekstraraðilum, skólastjórnendum, kennurum og öðrum sem starfa í grunnskólum til stuðnings við gerð öryggishandbókar, öryggisáætlana og viðbragðsáætlana fyrir grunnskóla. Mikilvægt er að í öryggishandbók fyrir starfsfólk grunnskóla sé tæpt á öllum þeim þáttum sem koma fram í handbók þessari.

Sértæk öryggismál
Handbókin tekur ekki til sértækra öryggismála vegna barna með bráðaofnæmi, líkamlega eða andlega sjúkdóma, eða fötlun þar sem fyrir hvert slíkt barn gæti þurft að gera sértækar ráðstafanir.

Handbókinni er skipt í 10 meginkafla:

  1. Lög, reglugerðir og námskrár sem gilda um grunnskóla
  2. Velferð barna og ungmenna
  3. Netöryggi
  4. Slysavarnir og líkamlegt öryggi
  5. Öryggi í námsumhverfi
  6. Eftirlit
  7. Öryggi í ferðum á vegum grunnskóla
  8. Slys
  9. Almannavarnir og viðbrögð við eldvörnum og náttúruvá
  10. Áhugavert lesefni og viðaukar

Handbók um velferð og öryggi barna í grunnskólum

Síðast uppfært 18.10 2022