Móttaka nýrra nemenda

Nemendur sem hefja nám í 1. bekk heimsækja skólann reglulega áður en þeir koma í skólann ef þeir eru hluti af samstarfi grunn- og leikskóla svæðisins. Þeir sem koma annars staðar frá fá boð um að taka þátt í heimsóknum vorið áður en þeir hefja nám við skólann.

Vorið áður en börn hefja nám í 1. bekk fá þeir boð um heimsókn frá tilvonandi umsjónarkennara. Kennarinn kemur heim til allra nemenda í nokkrar mínútur, afhendir þeim boðskort í skólann og tekur af þeim mynd svo hægt sé að merkja snaga og fleira með myndum af börnunum tímanlega.

Á boðskorti kemur fram að foreldum og nemendum sé boðið til fundar þá um vorið þar sem skólastarfið er kynnt og börnin dvelja með kennara sínum í um klukkustund.

Að hausti hefst skólastarf rólega, fyrstu dagarnir eru stuttir og eiga allir nemendur einn vin úr 8.bekk sem fylgir honum eftir í frímínútum og aðstoðar eftir þörfum. Nánari lýsingu á þessu má finna í handbók fyrir foreldra.

Nemendur í 2. – 10. bekk.

Foreldrar sem skrá nemendur í skólann í þessa árganga eiga að fá góða kynningu á skólanum.

  • Ritari tekur við skráningum og setur upplýsingar í Mentor og Matartorg.
  • Ritari upplýsingur stjórnendur og hjúkrunarfræðing skólans um komu nemanda.
  • Deildarstjóri viðkomandi stigs upplýsir kennara og tekur þátt í móttöku ef þess er þörf.
  • Umsjónarkennari boðar foreldra og nemanda til viðtals þar sem kynnt er:
    • stundaskrá
    • dagleg rútína
    • fyrirkomulag íþrótta / sundtíma
    • stefna skólans (SMT, Heilsueflandi skóli)
    • Mentor

Umsjónarkennari tryggir að nemandinn hafi aðgang að samnemanda sem styður við hann fyrstu dagana, kynnir honum húsnæði, skólalóð og jafnvel umhverfi skólans.

Síðast uppfært 18.10 2022