Í Oddeyrarskóla er leitast við að koma á lærdómssamfélagi sem byggir á sameiginlegri ígrundun og samvinnu starfsfólks og hefur það að markmiði að efla námsárangur nemenda.
Nám nemenda í grunnskóla grundvallast á samspili margra þátta. Til að nemandi nái góðum árangri í námi þarf hann að vera í hvetjandi námsumhverfi, upplifa væntingar, læra vönduð vinnubrögð og njóta góðrar kennslu þar sem horft er til þarfa hans og markmiða.
Teymisvinna
Haustið 2021 var farið af stað með markvissa teymisvinnu undir leiðsögn frá MSHA en áður höfðu fáein teymi prófað sig áfram í þróun teymisvinnu. Markmið með teymisvinnu í Oddeyrarskóla er að auka gæði kennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, m.a. með sameiginlegri ígrundun starfsfólks og þar sem starfsmenn læra hver af öðrum.
Í Oddeyrarskóla nýtum við samvinnu og faglega samræðu til að mæta þörfum nemenda og stuðla að auknum námsárangri. Lögð er áhersla á að kennarar miðli því sem vel gengur og sæki sér þekkingu innan skólans og utan. Kennarar rýna í niðurstöður innra og ytra mats og þær nýttar við skipulagningu náms og kennslu. Starfsmenn vinna náið saman og styðja hver við annan í starfi og bera sameiginlega ábyrgð á að mæta þörfum nemenda.
Námsumhverfi
Fjölbreytilegt námsumhverfi og kennsluaðferðir, sem eru hvetjandi og styðjandi fyrir nemendur eru meginforsendur þess að nemendur nái þeim hæfniviðmiðum sem stefnt er að. Góður skólabragur eflir samskiptahæfni nemenda og þroska þeirra til virðingar og umburðarlyndis, jafnréttis og umgengni við aðra, umhverfi og náttúru. Námsumhverfi nemenda mótast af skólabrag, umhverfi, námsgögnum og öðrum aðbúnaði.
Í Oddeyrarskóla leggjum við áherslu á að námsumhverfi veki áhuga og stuðli að virkni í námi og kennslu. Við stuðlum að jákvæðum skólabrag með ýmsum leiðum. Áhersla er á að kennarar beiti viðurkenndum aðferðum sem stuðla að góðum samskiptum, uppbyggjandi og jákvæðu sambandi milli nemenda. Í skólanum er námsumhverfi sveigjanlegt og aðstæður skapaðar fyrir nemendur að ná markmiðum eftir mismunandi leiðum.
Náms- og kennsluaðferðir
Í Oddeyrarskóla er lögð áhersla á fjölbreyttar náms- og kennsluaðferðir svo nemendur hafi kost á námsaðferðum og námi við hæfi. Kennarar gera kennsluáætlanir og skipuleggja nám við hæfi hvers og eins og nýta til þess fjölbreyttar leiðir. Áhersla er á að efla sjálfstæði og væntingar til árangurs eru miklar. Nemendur vinna ýmist sjálfstætt eða í samvinnu við aðra en aðferðir samvinnunáms sem byggja á samræðum eru hluti af skólastarfinu.
Samræður í skólastarfinu
Í Aðalnámskrá grunnskóla frá 2011 er áhersla lögð á að nemendur séu virkir og sjálfstæðir í námi sínu, þeir skapi og miðli en séu ekki eingöngu viðtakendur. Vaxandi áhyggjur eru af ósjálfstæði nemenda og lítilli þrautseigju og vangaveltur hafa verið um hvort skýringuna sé að einhverju leyti að finna í kennsluaðferðunum.
Tungumálið er okkar tæki til að læra. Við lærum öll gegnum lestur, hlustun og samræður við hvert annað. Í skólanum nýtum við samræður markvisst á ákveðnum árgöngum. Markmiðið með því að nota gagnrýnar spurningar og æfa sig í að rökstyðja mál sitt er að efla hugsun nemenda og gera þá færari um að bera ábyrgð á námi sínu. Samræður nýtast í öllum námsgreinum til að auka skilning og efla hugsun.
Með aukinni samræðu eykst virkni nemenda, þeir þjálfast í að rýna til gagns, rökstyðja mál sitt og bera virðingu fyrir skoðunum annarra. Samræðan er góð leið til að skerpa skilning og auka samstarf nemenda. Læsisteymi Oddeyrarskóla hefur það hlutverk að styðja kennara og halda verkefninu lifandi.
Upplýsingatækni í skólastarfinu
Námsáherslur 21. aldarinnar byggja að miklu leyti á markvissa nýtingu miðla og upplýsinga og leggjum við áherslu á að nemendur Oddeyrarskóla öðlist hæfni til að nýta sér fjölbreyttar og nýstárlegar leiðir í námi sínu á hverju aldursstigi fyrir sig. Upplýsingatækni í skólastarfinu stuðlar að fjölbreytni í námi og vinnubrögðum í öllum námsgreinum. Í Oddeyrarskóla er áhersla lögð á samþættingu námsgreina, að læra góð og gagnleg vinnubrögð og að skapa nemendum tækifæri á að miðla á skapandi hátt.
Allir nemendur hafa aðgang að umhverfi sem kallast Google Workspace for Education, en í því umhverfi geta nemendur unnið ýmis konar verkefni á rafrænan hátt og deilt vinnu sinni með kennurum sem veita þeim endurgjöf. Umhverfið býður upp á mikla gagnvirkni og gott utanumhald.
Nemendur skólans hafa gott aðgengi að tækjum á skólatíma en í 5. – 10. bekk er eitt tæki, chromebook tölva, fyrir hvern nemenda. Þess utan hafa nemendur aðgengi að nokkrum ipödum sem hægt er að hafa að láni í styttri tíma. Nemendur 1. – 4. bekkjar hafa sameiginlega chromebook vagn með um 20 tækjum og um 20 ipada þar að auki.
Allir nemendur Oddeyrarskóla læra undirstöður forritunar í gegnum ýmis forrit sem henta í skólastarfi.
Náms- og starfsfræðsla
Náms- og starfsráðgjöf er lögbundinn hluti af sérfræðiþjónustu skóla. Námsráðgjöf er ætlað að vera fyrirbyggjandi þjónusta við alla nemendur skólans og stuðla að því að nemendur geti skapað sér viðunandi vinnuskilyrði í skóla og heima og markað sér braut til framtíðar. Þetta felur m.a. í sér að náms- og starfsráðgjafi þarf að hafa frumkvæði að því að nálgast nemendur sem eru í þörf fyrir aðstoð en bera sig ekki eftir björginni.
Náms- og starfsráðgjöf felst í því að liðsinna nemendum við að finna hæfileikum sínum, áhugasviðum og kröftum farveg. Markviss náms- og starfsfræðsla þarf að standa nemendum til boða frá 1. – 10. bekk grunnskóla. Jafnrétti ber að hafa að leiðarljósi í náms- og starfsfræðslu með því að kynna piltum og stúlkum fjölbreytt námsframboð að loknum grunnskóla og störf af ýmsu tagi. Vinna þarf gegn stöðluðum ímyndum kynjanna um möguleika í náms- og starfsvali allt frá upphafi.
Síðast uppfært 18.10 2022