Í aðalnámskrá grunnskóla segir að megintilgangur námsmats sé að veita leiðbeinandi upplýsingar um námið og hvernig markmiðum þess verður náð. Með námsmati er fylgst með því hvernig nemendum tekst að ná almennum hæfniviðmiðum aðalnámskrár, stuðlað að námshvatningu, nemendur örvaðir til framfara og metið hverjir þurfa á sérstakri aðstoð að halda.
Markviss endurgjöf til nemanda er í daglegu skólastarfi. Nemendur og kennarar ræða saman um markmið og framvindu námsins, í hópum eða einslega. Námsmat fer þannig fram inni í kennslustofunni við dagleg störf. Nemendur venjast því að ræða um nám sitt og því að kennarinn spyrji reglulega um það hvernig þeir leysa verkefni, hvernig þeir hugsa og hvernig þeir komast að tiltekinni niðurstöðu. Markmiðið er alltaf að finna hvað ber árangur og hvernig ber að taka næstu skref.
Formlegt námsmat fer fram í gegnum hæfnikort í Mentor. Þar eru hæfniviðmið sem metin eru reglulega og er matið birt jafnóðum. Þar má einnig finna umsagnir þar sem kennarar kjósa að nýta þær. Samtöl við foreldra og nemendur eru að jafnaði tvisvar á vetri á viðtalsdögum þar sem framvindan er rædd og þau markmið sem stefnt er að. Að vori fá nemendur fá útprentuð vitnisburðarblöð.
Í Oddeyrarskóla er lögð áhersla á fjölbreyttar leiðir í námsmati.
Lykilhæfni tengist öllum námsgreinum skólans og vísar til hæfni sem snýr að nemandanum sjálfum. Lykilhæfni er hæfni þar sem alhliða þroski nemenda birtist. Lykilhæfni er þannig metin um leið og þekking og leikni í hinum mismunandi greinum er metin og fléttast gjarnan inn í annað námsmat. Viðmið um matið eru sett fram í fimm liðum sem eiga við öll námssvið:
- Tjáning og miðlun
- Skapandi og gagnrýnin hugsun
- Sjálfstæði og samvinna
- Nýting miðla og upplýsinga
- Ábyrgð og mat á eigin námi
Hér má sjá veggspjald þar sem nánar er fjallað um þessa þætti og hvað þeir þýða fyrir hvert aldursstig.
Síðast uppfært 18.10 2022