Unnið gegn einelti
Velferðarteymi skólans vinnur að forvörnum gegn einelti auk þess að taka á eineltismálum þegar þau koma upp. Í velferðarteymi 2023-2024 eru:
- Anna Bergrós Arnarsdóttir, skólastjóri
- Linda Rós Rögnvaldsdóttir ráðgjafi
- Margrét Th. Aðalgeirsdóttir, deildarstjóri
- Fjóla Kristín Helgadóttir, deildarstjóri
- Ingibjörg Sólrún Ingimundardtóttir, hjúkrunarfræðingur
Hlutverk velferðarteymis í eineltismálum:
- Endurskoða árlega forvarnaráætlun gegn einelti.
- Tryggja að fyrirbyggjandi aðgerðum gegn einelti sé beitt, m.a. með skimunaráætlun
- Upplýsa foreldra/forsjáraðila um stefnu skólans í eineltismálum og hvetja þá til að leggja skólanum lið.
- Vinna aðgerðaráætlun gegn einelti og ofbeldi í Oddeyrarskóla og birta á heimasíðu skólans.
- Upplýsa foreldra um hverjir sitja í teyminu.
- Kynna stefnu skólans á haustfundum og gera forsjáraðilum grein fyrir mikilvægi þeirra í fyrirbyggjandi aðgerðum og við lausn eineltismála.
- Benda foreldrum á að jákvæð umræða um stefnu skólans í eineltismálum sé mikilvæg þar sem skoðanir þeirra og viðhorf móti skoðanir og viðhorf barna þeirra.
- Hvetja foreldra til að ræða við börn sín um einelti og afleiðingar þess.
- Tryggja að kennarar haldi reglulega bekkjarfundi þar sem stuðlað er að góðum samskiptum innan skólasamfélagsins.
- Kynna gátlista fyrir kennurum og hvetja þá til að nýta sér hann á hverju skólaári.
- Kynna starfsfólki skólans forvarnar- og fræðsluáætlun gegn einelti. Fjalla um aðferðir, gagnasöfnun og samskiptaleiðir.