Akureyrarbær stendur fyrir hæfileikakeppni í tengslum við Barnamenningarhátíð bæjarins. Hæfileikakeppnin er árlegur viðburður fyrir börn í 5. – 10. bekk og verður haldinn þann 22. apríl næstkomandi kl. 16-18.
Eins og orðið hæfileikakeppni gefur til kynna er um að ræða fjölbreytta keppni enda geta hæfileikar verið afar fjölbreyttir. Dæmi um atriði sem gætu skráð sig til leiks geta verið á sviði sönglistar, leiklistar, danslistar, töfrabragða og hljóðlistar svo eitthvað sé nefnt. Atriðin geta verið einstaklingsatriði, paraatriði eða hópatriði.
Viðburður eins og þessi getur verið vettvangur fyrir ungt fólk á Akureyri til þess að koma sér á framfæri en fyrst og fremst er um að ræða mikilvægan stökkpall fyrir einstaklinga til þess að stíga út fyrir þægindarammann sinn. Endilega skoðið þetta með börnunum ykkar og hjálpið þeim að skrá sig.
Skráning fer fram hér: https://eu.jotform.com/210744037735353 og hefur verið farmlengd til 20.apríl.

Síðast uppfært 14.04 2026
