Oddeyrarskóli hefur fengið Kristínu Tómasdóttur til að flytja erindi sitt „Öflugri sjálfsmynd“ mánudagskvöldið 14. maí fyrir foreldra barna í skólanum og starfsfólk.
Í erindi sínu, sem er 1 klst, leggur Kristín áherslu á þrjá þætti, þ.e.
- Hvað merkir orðið sjálfsmynd?
- Hvernig þekkjum við sjálfsmynd barnanna okkar?
- Hvernig geta foreldrar haft áhrif á sjálfsmynd barnanna sinna?
Heimili og skóli geta í sameiningu hjálpað krökkunum með þessa þætti og getur verið gott að fá hvatningu og góð ráð til þess.
Því viljum við fá a.m.k. einn fulltrúa frá hverju heimili á þetta fræðsluerindi Kristínar sem verður í Oddeyrarskóla mánudagskvöldið næstkomandi, 14. maí, kl. 20:00.
Hér skráið þið ykkur á erindið.
Síðast uppfært 11.05 2018