Stjörnuleikur og Lífshlaupið úrslit

Úrslit úr stjörnuleiknum voru kynnt á sal á í vikunni en þar voru sjö nemendur af þeim 49 sem fengu stjörnu í stjörnuleikum í ár sem voru dregnir út. Að þessu sinni var farið með nemendur í klifur og það var einstaklega skemmtilegt og allir tóku þátt. Síðan var smá hressing í boði skólans í Axels bakaríi. Sunna og Drífa sem starfa í SMT stýrihóp fóru með krökkunum. Hér má sjá fleiri myndir af vinningshöfum í stjörnuleiknum.

Viðurkenning var einnig veitt fyrir lífshlaupið en það voru nemendur í 1. bekk sem sigruðu skólakeppnina að þessu sinni. Skráð var niður hreyfing nemenda fyrstu tvær vikurnar í febrúar bæði á skólatíma og utan skóla. Í þessari keppni eru það hreyfimínútur sem keppt er um og hreyfingin sjálf getur verið af ýmsu tagi.

Síðast uppfært 13.03 2026