Upplestarkeppni í 7. bekk

Föstudaginn 13. febrúar fór fram upplestrarkeppni í sjöunda bekk. Að þessu sinni var hún í íþróttasalnum sem var skreyttur í tilefni dagsins. 

Nemendur hafa verið að æfa sig undanfarnar vikur og staðið sig með mikilli prýði.  

Í keppninni sjálfri lásu nemendur í þrem umferðum. Í þeirri fyrstu brot úr sögunni Kennarinn sem hvarf eftir Bergrúnu írisi Sævarsdóttur; í annarri umferð lásu þau ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk og í þeirri þriðju ljóð að eigin vali. 

Þriggja manna dómnefnd valdi svo tvo nemendur til þátttöku í lokakeppninni sem verður í Brekkuskóla þann 10. mars næstkomandi. 

Þær Kristrún Erla og Kristrún Lára urðu fyrir valinu að þessu sinni. 

Óskum við þeim hjartanlega 

til hamingju. 

Síðast uppfært 13.02 2026