Þann 11. maí síðastliðinn var haldin upplestrarhátið í 4. bekk á sal skólans. Nemendur bekkjarins komu fram og lásu upp sögur og ljóð sem þau hafa æft af kappi síðan í febrúar. Þórarinn bókasafnskennari var til aðstoðar við þjálfun en hann leiðbeinandi einnig nemendur í 7. bekk fyrir upplestrarkeppnina þeirra. Allir nemendur tóku þátt í hátíðinni og foreldrum var boðið að koma og fylgjast með. Mætingin var mjög góð og allir voru hæst ánægðir með lestur barnanna.
Dagana 27. apríl til 10. maí fór fram lestrarátak/keppni í fyrsta til sjöunda bekk. Nemendur lásu heima og skráðu í læsisappið það sem þeir lásu og þann tíma sem lesið var á hverjum degi. Í lok keppninnar voru veittar viðurkenningar þeim sem lásu mest (voru með flestar mínútur) í hverjum bekk, sem og þeim bekk sem las samtals flestar mínútur. Verðlaunaafhendingin fór fram miðvikudaginn 13. maí og henni stjórnuðu kennararnir Finnur og Sólveig og fórst þeim það vel úr hendi.
Í sjöunda bekk las Ragnhildur Perla mest, í sjötta bekk var það Erna Tom, í fimmta bekk Frosti Snær. Mesti lestrarhesturinn í fjórða bekk var Dalila Coelho, í þriðja var það Arnar Freyr, í öðrum Fanney Margrét og í fyrsta bekk las Lóa Moor mest.
Sá bekkur sem hlaut viðurkenningu fyrir að hafa lesið samtals í flestar mínútur var 5. bekkur. Fyrsti bekkur hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi þátttöku allra í bekknum.
Fulltrúar frá öllum þeim átta stjórnmálaflokkum sem eru í framboði í komandi bæjarstjórnarkosningum hafa verið að fara í heimsóknir í skólana á Akureyri. Þar eru þeir að kynna sig og flokk sinn og ræða við nemendur á unglingastigi. Fyrir fundinn fengu nemendur í nemenda- og réttindaráði tíma til að kíkja á stefnuyfirlýsingu flokkanna og undirbúa spurningar. Nemendur komu með vel ígrundaðar og margar hverjar krefjandi spurningar sem snerta bæði bæjarmál, þeirra nærumhverfi, menntamál auk þjóðfélagsmála. Í lokin fengu aðrir nemendur færi á að spyrja þeirra spurninga sem höfðu kviknað er þeir hlustuðu á umræðurnar. Eftir umræðurnar voru haldnar kosningar þar sem nemendur gátu kosið þann flokk sem þeim leist best á.
Nemendur lærðu mikið af undirbúningnum og fundinum og efldu skilning sinn á stjórnmálum, á meðan fulltrúar stjórnmálaflokkanna fengu að kynnast sjónarmiðum og hugsunum ungmenna. Hér má sjá fleiri myndir af fundinum.
Síðast uppfært 06.05 2026
Vafraköku stillingar
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir eða hafna notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er.
Nauðsynlegar kökur
Always active
Nauðsynlegar kökur tryggja eðlilega virkni og öryggi tenginga.
Preferences
The technical storage or access is necessary for the legitimate purpose of storing preferences that are not requested by the subscriber or user.
Tölfræðikökur
The technical storage or access that is used exclusively for statistical purposes.Tölfræðikökur þessar kökur aðstoða aðstandendur vefsvæðisins að skilja hvernig notendur upp til hópa haga sér á vefsvæðinu.
Markaðskökur
Markaðskökur eru notaðar til að fylgja notendum milli vefsvæða. Markmið þeirra er fyrst og fremst að sýna notendum auglýsingaefni sem líklega hefur vægi fyrir notendann.