Vorsprettur – lestrarsprettur

Dagana 27. apríl til 10. maí fór fram lestrarátak/keppni í fyrsta til sjöunda bekk. Nemendur lásu heima og skráðu í læsisappið það sem þeir lásu og þann tíma sem lesið var á hverjum degi. Í lok keppninnar voru veittar viðurkenningar þeim sem lásu mest (voru með flestar mínútur) í hverjum bekk, sem og þeim bekk sem las samtals flestar mínútur.  Verðlaunaafhendingin fór fram miðvikudaginn 13. maí og henni stjórnuðu kennararnir Finnur og Sólveig og fórst þeim það vel úr hendi.

Í sjöunda bekk las Ragnhildur Perla mest, í sjötta bekk var það Erna Tom, í fimmta bekk Frosti Snær. Mesti lestrarhesturinn í fjórða bekk var Dalila Coelho, í þriðja var það Arnar Freyr, í öðrum Fanney Margrét og í fyrsta bekk las Lóa Moor mest.

Myndir

Sá bekkur sem hlaut viðurkenningu fyrir að hafa lesið samtals í flestar mínútur var 5. bekkur. Fyrsti bekkur hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi þátttöku allra í bekknum.

Við óskum öllum til hamingju með árangurinn!

Síðast uppfært 15.05 2026