Komið þið sæl.
Viljum minna á að skráningar í stakar máltíðir í desember þurfa að berast fyrir 21. nóvember inn á matartorg.is eða hafa samband við skólann.
Þann 8. desember er pizza í matinn og þann 14. desember er jólamaturinn – reykt svínakjöt, brúnaðar kartöflur og tilheyrandi.
Þessar máltíðir verður hægt að kaupa stakar kr. 600.- pr. máltíð og þarf að skrá í þær fyrir 2. desember og greiða hjá ritara skólans eða matráð.
Einnig minnum við á að ef skrá á nemendur í frístund í jólaleyfinu að skrá fyrir 21. nóvember.
Litlu-jól nemenda eru 20. desember og fara nemendur í jólaleyfi að þeim loknum. Skólinn hefst aftur 3. janúar á nýju ári.
Hægt er að senda tölvupóst á ritara kh@akmennt.is eða Sigrúnu sigrung@akmennt.is.
Með bestu kveðju
Kristín ritari.
Síðast uppfært 16.11 2016