Nú er vor í lofti og upplagt að rifja upp hjólareglur skólans:
- Nemendur mega koma á hjóli í skólann frá sjö ára aldri samkvæmt landslögum.
- Nemandi sem kemur á hjóli í skólann gerir það á ábyrgð foreldra / forráðamanna sem skulu meta færni og getu barnsins sem og aðstæður til að hjóla í skólann.
- Þegar komið er á hjóli í skólann á að geyma það læst á skólalóðinni í eða við hjólagrindur.
- Nota skal viðeigandi öryggisbúnað.
- Ekki má nota reiðhjól eða vélknúin ökutæki, s.s. vespur, á skólalóðinni meðan skóla- og frístundarstarfi stendur.
- Heimilt er að vera á hlaupahjóli, hjólabretti og línuskautum á malbikaða fótboltavellinum sunnan við skólann í frímínútum. Nauðsynlegt að vera með hjálm.
- Skólinn ber enga ábyrgð á hjólum, hjólabrettum eða öðrum leikföngum sem nemendur koma með í skólann. Þjófnað eða skemmdarverk má tilkynna til lögreglu.
Jafnframt bendum við á einblöðung frá Samgöngustofu þar sem sjá má reglur sem gilda um létt bifhjól.
Síðast uppfært 11.04 2019