Samkvæmt nýrri reglugerð sem við störfum eftir 3. – 18. nóvember höfum við nú endurskipulagt skólastarfið með hliðsjón af þeim takmörkunum sem þar er lýst. Í ljósi stöðunnar á Akureyri og fjölda smita var ákveðið að hafa aðgerðir með eftirfarandi hætti.
1. – 4. bekkur
- Skóladagur nemenda í 1.- 4. bekk er eins og venjulega frá 8:10 – 13:20, gengið inn í húsið á sama stað og venjulega
- Ekki er hægt að bjóða upp á hafragraut né móttöku á bókasafni fyrir klukkan átta.
- Nemendur koma beint inn í sínar heimastofur og þess vegna gott ef hægt er að senda börnin ekki allt of snemma af stað.
- Frístund verður eingöngu í boði fyrir 1. og 2. bekk.
- Hádegismatur er fyrir 1. – 4. bekk.
- Ávextir og mjólk verða í boði fyrir þá sem eru í áskrift.
- Kennsla er í höndum kennara stigsins, engin íþrótta- eða sundkennsla verður á meðan þessi reglugerð gildir og list- og verkgreinar ekki með hefðbundnu sniði.
5. – 7. bekkur
- Skóladagur nemenda í 5. -7 .bekk hefst kl. 8:10 og lýkur um klukkan 12.
- Ekki verður hægt að bjóða upp á hafragraut í upphafi dags.
- 5. bekkur gengur inn í skólann við íþróttahús (að vestan) og eru á neðstu hæð, í Stapa og öðrum rýmum á þeim gangi.
- Nemendur í 6. og 7. bekkur ganga inn í skólann þar sem þeir eru vanir.
- 6. bekkur verður á miðhæð
- 7. bekkur verður á efstu hæð
- Engar íþróttir eða sund verða á tímabilinu og kennarateymi hvers hóps sinna allri kennslu hópsins. Ekki verður því um hefðbundið nám að ræða t.d. í list- og verkgreinum.
- Mikilvægt er að virða 2m nándarmörk og ganga beina leið inn í þau rými sem hafa verið skilgreind fyrir hvern hóp. Nota þarf grímur á göngum og öðrum sameiginlegum rýmum þar sem hópar blandast og mætast. Við mælumst til þess að nemendur hafi grímur meðferðist ef þeir eiga.
- Ekki verður hægt að fara í matsal og því gott ef nemendur eiga brúsa sem þeir geta haft í vatn til að drekka yfir daginn. Ávextir og mjólk verða í boði fyrir þá sem eru í áskrift.
8.- 10. bekkur
Nemendur í 8. – 10. bekk verða í fjarnámi næstu fjóra daga. Sú ákvörðun verður endurskoðuð á föstudag. Fjarnámið verður með þeim hætti að nemendur fá send verkefni í gegnum google classroom sem þeir vinna heima með stuðningi frá kennurum. Þeir hitta kennara sína á þremur google meet fundum yfir daginn. Nemendur hitta umsjónarkennara á fyrsta fundi á google meet kl. 9.15 í fyrramálið þar sem farið verður yfir skipulag námsins þessa daga.
Hér er hægt að fara inn á heimasíðu fjarnáms Oddeyrarskóla. Ef eitthvað er óljóst þá endilega snúið ykkur til umsjónarkennara eða deildarstjóra.
Með þökkum fyrir biðlundina og gott samstarf.
Starfsfólk Oddeyrarskóla
Síðast uppfært 02.11 2020