Skólaslit Oddeyrarskóla verða þriðjudaginn 9. júní. Nemendur í 1. – 10. bekk mæta klukkan 9:00 (frístund opin frá klukkan 8:00 – 9:00). Nemendur mæta á sal skólans og fara síðan með umsjónarkennurum í sínar heimastofur.
Nemendur unglingastigs mæta klukkan 14:30 á sal skólans. Þá eru skólaslit og útskrift nemenda úr 10. bekk. Að dagskrá lokinni er nemendum 10. bekkjar og aðstandendum þeirra ásamt starfsfólki boðið í kaffi í matsal skólans. Vonumst til að sjá sem flesta þar.
Síðast uppfært 05.06 2026
