Þemadagar 2026

Í vikunni voru skemmtilegir þemadagar þar sem unnið var með fjölmenningu á ýmsan hátt.  Yngstu börnin léku sér m.a. með tungumál, skrifuðu setningar og tölur á tungumálum nemenda skólans, lærðu um mismunandi lönd, fána, dansa, tónlist og fleira tengt ólíkum menningarheimum. Eldri nemendur völdu sér viðfangsefni sem m.a.  tengdust mat og menningu, fatnaði, íþróttum, tónlist og dansi, og byggingum. Þemadögunum lauk með kynningu hjá nemendum í 5. – 10. bekk þar sem þeir kynntu afrakstur af vinnu sinni og buðu margir nemendur upp á mat sem var einkennandi fyrir landið sem þeir voru að kynna.

Síðast uppfært 17.04 2026