Venja hefur verið hér í Oddeyrarskóla að umsjónarkennari 8. bekkjar heimsæki verðandi nemendur sína og foreldra/forráðamenn þeirra að hausti og hefur umsjónarkennari 8. bekkjar lokið við þær heimsóknir í ár. Tilgangur heimsóknanna er að efla tengsl heimilis og skóla með því að kynnast nemendum og foreldrum/forráðamönnum í öruggu umhverfi nemenda og fjölskyldna. Í heimsóknunum gefst tækifæri til að ræða skólann, námið, áhugamál, líðan, hversdagsleikann og allt þar á milli. Heimsóknirnar voru í upphafi hluti af þróunarverkefni sem skólinn tók þátt í um aukið samstarf heimila og skóla. Kannanir sem gerðar hafa verið á reynslu foreldra/forráðamanna og nemenda af heimsóknunum hafa sýnt að almenn ánægja hefur verið með þetta fyrirkomulag og niðurstöður því hvatt okkur til að halda heimsóknunum áfram.
![](https://oddeyrarskoli.is/wp-content/uploads/2017/12/24992750_10212990638673357_826747499_o-1024x768.jpg)
Síðast uppfært 31.08 2023