Ágætu foreldrar og forráðamenn.
Tekin hefur verið ákvörðun að um næstu áramót bjóðist eftirfarandi foreldrahópum afsláttur í frístund, einstæðum foreldrum, námsmönnum þar sem báðir foreldrar eru í fullu námi, öryrkjum þar sem báðir foreldrar eru 75% öryrkjar og atvinnulausum foreldrum. Jafnframt gildir afslátturinn þar sem annað foreldrið er t.d. í fullu námi og hitt atvinnulaust eða 75% öryrki.
Til að njóta afsláttar:
- Þurfa námsmenn að framvísa skólavottorðum í byrjun hverrar annar.
- Í vottorði frá skóla þarf að koma fram að um fullt nám sé að ræða og það varir í að minnsta kosti í eitt ár.
- Í lok annar þarf að skila staðfestingu um námsframvindu.
- Þurf atvinnulausir foreldrar, að sækja um mánaðarlega og skila vottorði um stöðu sína frá Vinnumálastofnum fyrir 20. hvers mánaðar.
- Þurfa foreldar að vera skráðir 75% öryrkjar.
- Þurfa einstæðir foreldrar að skila inn vottorði frá sýslumanni um hjúskaparstöðu
- Hægt er að sækja vottorð um hjúskaparstöðu rafrænt inn á þjóðskrá
(umsókn C-116)
- Hægt er að sækja vottorð um hjúskaparstöðu rafrænt inn á þjóðskrá
Sótt er um afslátt í Völu– frístund kerfinu. Eftirfarandi staðfestingar þurfa að berast í viðhengi með umsókn. Lægra gjald tekur gildi 1. dag næsta mánaðar eftir að umsókn og gögn berast.
- vottorðum frá skólum,
- vottorð frá Vinnumálastofnun
- staðfesting um hjúskaparstöðu frá sýslumanni
- mynd af örorkuskírteini.
Fræðslu-og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar
Síðast uppfært 21.12 2022