Búið er að setja inn á heimasíðu skólans vorskýrslu gæðaráðs og umbótaáætlun fyrir næsta skólaár. Einnig má þar finna niðurstöður úr skólapúlsi og niðurstöður fyrir Oddeyrarskóla úr íslensku æskulýðsrannsókninni, sjá www.oddeyrarskoli.is – skýrslur og mat.
Á vordögum fékk Oddeyrarskóli upplýsingar um veglega styrkveitingu úr Sprotasjóði til að fylgja eftir verkefni næsta skólaár sem við köllum „Bætt líðan – aukin fræðsla“. Verkefnið snýst um að auka fræðslu til nemenda, starfsfólks og foreldra með það að markmiði að efla geðheilbrigði. Nemendur fá fræðslu í formi ART kennslu fyrir tvo árganga sem taka 12 vikna námskeið til að efla félagsfærni, reiðistjórnun og eflingu siðgæðisþroska. Þá munu þeir árgangar sem ekki fá ART fá styttri fræðslu um valda þætti er snúa að geðrækt og líðan og verður sniðin að aldri og þroska en gæti t.d. snúist um símanotkun, svefn eða kvíða.
Starfsmenn fá einnig fræðslu sem snýr að geðheilsu barna og foreldrar í völdum árgöngum fá sérstaka fræðslu um þætti er snúa að farsæld barna. Þá er liður í verkefninu að auka samstarf og samverustundir við alla foreldra skólans og endurvekja bekkjarkvöld eða seinniparts samveru einu sinni á skólaárinu hjá öllum nemendum og foreldrum.
Við ætlum að breyta rými inn af bókasafni þar sem áður var tölvuver og síðustu tvö ár sérkennsluaðstaða en þar er hugmyndin að hafa aðstöðu þar sem nemendur geta unnið í ró og næði ef þeir þurfa að að hvíla sig á bekkjarumhverfinu tímabundið.
Skólaslit Oddeyrarskóla verða 6. júní næstkomandi. Nemendur í 1. – 7. bekk mæta í íþróttasal skólans klukkan 9:00 en fylgja síðan umsjónarkennara í stofur og eiga kveðjustund þar.
Skólaslit 8. – 10. bekkjar og útskrift nemenda í 10. bekk verða klukkan 14:30. Nemendum í 10. bekk og aðstandendum þeirra er boðið í kaffi að athöfn lokinni.
Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir á skólaslit.
Föstudaginn 26. maí hélt Betadeild, Delta, Kappa, Gamma upp á 45 ára afmæli sitt. Á þeim tímamótum var tilefni til að heiðra konu fyrir vel unnin störf að mennta- og/eða menningarmálum. Að þessu sinni varð Helga Hauksdóttir fyrir valinu en hún hefur lagt mikið að mörkum í mennta- og fræðslustörfum og unnið afar óeigingjarnt starf sem kennari, skólastjóri og kennsluráðgjafi erlendra nemenda.
Þegar Helga var skólastjóri í Oddeyrarskóla var þar móttökudeild fyrir nýbúa en árið 2012 var deildin lögð niður og nemendurnir fóru í sína heimaskóla. Helga tók þá við nýju starfi hjá Akureyrarbæ, starfi kennsluráðgjafa erlendra nemenda. Það starf mótaði hún og þróaði áfram af mikilli elju og ástríðu. Hún fór m.a. á milli grunnskóla bæjarins til að kenna nemendum og vinna með kennurunum auk þess að vera í góðu sambandi við fjölskyldur nemenda. Þörfin fyrir ráðgjöf til kennara, námsefni, stuðning við nemendur og kennara, upplýsingar til fjölskyldna um ýmis mál og fleira var mikil. Meðfram þessari vinnu bjó Helga til heimasíðuna erlendir.akmennt.is þar sem hún kom miklu efni þar inn sem hún taldi að gæti nýst öllum aðilum. Frá árinu 2012 hefur erlendum nemendum fjölgað svo um munar í grunnskólum Akureyrar og er brautryðjendastarf Helgu í þessum málaflokki afar mikilvægt og hefur án efa komið öllum til góða. Á myndinni er Aðalheiður Bragadóttir formaður Betadeildar á Akureyri
Við í Oddeyrarskóla óskum Helgu hjartanlega til hamingju með þessa viðurkenningu.
Mánudaginn 15. maí kl. 20.15 verður haldinn fundur í Háskólanum á Akureyri um mikilvægi samvinnu foreldra fyrir velferð barna. Um er að ræða fræðslufund fyrir foreldra og forsjáraðila barna á vegum landssamtakanna Heimilis og skóla fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Leitað verður svara við spurningum á borð við: Hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að auka vellíðan barnsins míns og skiptir samvinna foreldra máli þegar kemur að farsæld barnanna okkar?
Foreldrar og forsjáraðilar barna í bænum eru hvattir til að mæta á fundinn sem haldinn verður í hátíðarsal Háskólans á Akureyri mánudaginn 15. maí frá kl. 20.15 til 21.30. Fundurinn verður einnig aðgengilegur í streymi fyrir þá sem ekki komast en til að fá link þarf að skrá sig með netfangi.
Nemendur Oddeyrarskóla stóðu sig með mikilli prýði í Fiðringi, sem er hæfileikakeppni fyrir 8.-10. bekk á Norðurlandi. Undankeppni fór fram í Laugarborg í síðustu viku og komust nemendur Oddeyrarskóla áfram í úrslitakeppnina sem haldin var í Hofi í gærkvöldi. Atriðið þeirra, Hjálp, sem þau sömdu sjálf og æfðu undir stjórn Úlfhildar Örnólfsdóttur, lenti í öðru sæti í keppninni.
Þetta er í annað sinn sem Fiðringur er haldin. Í fyrra voru það einungis skólar á Akureyri sem tóku þátt og urðu nemendur Oddeyrarskóla þá einnig í öðru sæti.
Við höldum okkar áætlum og förum í Hlíðarfjall í dag. Munið hlýjan og góðan klæðnað og nesti sem hentar útiveru. Skóla lýkur um hádegi en frístund er opin.
Fimmtudaginn 23. mars stefnum við á útivistardag í Hlíðarfjalli með alla nemendur skólans. Dagurinn er gulur, eða skertur skóladagur (15. feb á skóladagatali) svo skóla lýkur um hádegi. Munið eftir hlýjum og góðum klæðnaði, góðu nesti og hjálmum ef krakkarnir eiga slíkan. Annars fá þau hjálm að láni. Við vonum að veðrið verði gott þennan dag og opið í Hlíðarfjalli en ef þarf að aflýsa látum við vita eins fljótt og kostur er. Þá verður hefðbundinn skóladagur þennan dag. Foreldrar fá bréf með nánari upplýsingum.
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir eða hafna notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er.
Nauðsynlegar kökur
Always active
Nauðsynlegar kökur tryggja eðlilega virkni og öryggi tenginga.
Preferences
The technical storage or access is necessary for the legitimate purpose of storing preferences that are not requested by the subscriber or user.
Tölfræðikökur
The technical storage or access that is used exclusively for statistical purposes.Tölfræðikökur þessar kökur aðstoða aðstandendur vefsvæðisins að skilja hvernig notendur upp til hópa haga sér á vefsvæðinu.
Markaðskökur
Markaðskökur eru notaðar til að fylgja notendum milli vefsvæða. Markmið þeirra er fyrst og fremst að sýna notendum auglýsingaefni sem líklega hefur vægi fyrir notendann.