Í dag heimsóttu nemendur í 8. og 9. bekk vini sína í 1. og 2. bekk þar sem hin ýmsu spil voru spiluð. Á myndasíðu má sjá fleiri myndir.
Category Archives: Fréttir og tilkynningar
Vel heppnaður útivistardagur í Hlíðarfjalli
Í dag var útivistardagur hjá okkur í Oddeyrarskóla. Við fórum öll upp í Hlíðarfjall ýmist á gönguskíði, svigskíði eða bretti og virtust allir ánægðir með daginn.
Þeir nemendur sem ekki eiga skíða- eða brettabúnað gátu fengið hann lánaðan í Hlíðarfjalli og var undirbúningur starfsmanna Hlíðarfjalls til fyrirmyndar eins og alltaf. Því gekk ótrúlega vel að koma öllum í skó og skíði til að fara að renna sér í brekkunum. Veðrið var gott þrátt fyrir örlitla snjókomu en færið var frábært. Brekkurnar voru vel troðnar svo allir gátu sýnt sína bestu takta 🙂
Nemendur 3. og 4. bekkjar fengu skíðakennslu í boði Skíðafélags Akureyrar og Hlíðarfjalls fyrr í vetur og mátti sjá árangurinn af þeirri kennslu í dag.
Við þökkum starfsmönnum Hlíðarfjalls og Skóladeild Akureyrar kærlega fyrir frábæran dag!
Myndir eru komnar á myndasíðu skólans.
Dagur stærðfræðinnar
Í dag 7. febrúar er Dagur stærðfræðinnar. Markmið með deginum er tvíþætt; að vekja nemendur og sem flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu og einnig að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjái hana í víðara samhengi. Af þessu tilefni tóku allir á yngsta stiginu þátt í skemmtilegum stærðfræðiverkefnum í ýmsum myndum, fóru m.a. í bingó, Yatzy, spiluðu alls kyns spil og fleira. Myndir frá deginum má sjá á myndasíðu skólans.
Skólahreysti Oddeyrarskóla
Skólahreysti Oddeyrarskóla var haldin í dag í íþróttasal skólans. Keppnin tókst afar vel og var mikið fjör. Þátttakendur voru nemendur á unglingastigi. Hjá stelpunum voru það Ágústa Jenný 8.b. sem var hlutskörpust í hraðabrautinni og Birta 8.b. í armbeygjum og hreystigreip. Þær munu taka þátt í æfingum fyrir Skólahreysti ásamt varamanni sem verður Tara 10.b.
Hjá strákunum voru valdir til æfinga 4 strákar sem voru mjög jafnir, þeir Don og Egill í 9.b. og Alexander Ívan í 10.b. í hraðabraut. Alexander Ívan og Hrannar 10.b. voru hlutskarpastir í dýfingum/upphýfingum.
Síðar verður ákveðið hverjir af þessum nemendum munu keppa fyrir hönd Oddeyrarskóla í lokakeppninni sem haldin verður í mars. Til hamingju krakkar!
Myndir eru væntanlegar á myndasíðu skólans.
Skólaval – innritun nemenda í 1. bekk grunnskóla
Í febrúarmánuði fer fram innritun nemenda sem hefja nám í 1. bekk í grunnskólum Akureyrar haustið 2014.
Á heimasíðu skóladeildar, undir hnappnum Skólaval – grunnskólar, má finna upplýsingar um grunnskólana á Akureyri, sértæka þjónustu, viðmiðunarreglur um inntöku, rafræn umsóknareyðublöð og fleira. Hver skóli er með opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í grunnskóla haustið 2014 og eru foreldrar hvattir til að notfæra sér það tækifæri.
Kynning/opið hús, verður í grunnskólum Akureyrar í febrúar frá kl. 9:00-11.00:
Glerárskóli og Lundarskóli 11. febrúar
Giljaskóli og Naustaskóli 12. febrúar
Oddeyrarskóli og Síðuskóli 13. febrúar
Brekkuskóli 14. febrúar
Frábær árshátíð afstaðin
Um síðustu helgi var haldin árshátíð hér í Oddeyrarskóla. Alllir bekkir sýndu atriði og stóðu þeir sig frábærlega.
Sýnd voru fjölbreytt atriði, m.a. úr ýmsum sögum og ævintýrum. Góðlátlegt grín var gert að starfsmönnum skólans, nemendur sýndu listir sínar í íþróttum, stiklað var á stóru um vinsælustu hljómsveitir sögunnar og síðast en ekki síst var sýnd uppfærsla nemenda í 10. bekk á atriðum úr Dýrunum í Hálsaskógi. Foreldrafélag skólans styður einstaklega vel við árshátíðina m.a. með því að útvega leikstjóra fyrir 10. bekk og síðan stendur félagið fyrir stórglæsilegu kaffihlaðborði fyrir alla milli sýninga.
Dagurinn var ógleymanlegur og til að hjálpa okkur að halda í minningarnar tók Þórarinn Torfason skólasafnskennari og frístundaljósmyndari myndir af sýningunni og eru þær væntanlegar á myndasíðu skólans.
Þorgrímur Þráinsson rithöfundur í heimsókn
Í morgun kom Þorgrímur Þráinsson rithöfundur í heimsókn til nemenda í 10. bekk með fyrirlestur sem hann kallar Láttu drauminn rætast. Fyrirlesturinn er hvatning til nemenda um að bera ábyrgð á eigin lífi, sýna samkennd, bera virðingu fyrir öllum og hafa hugrekki til að fylgja hjartanu. Á morgun miðvikudag 22.jan. bjóða foreldrafélög skólanna í bænum, foreldrum nemenda í 10.bekk á fund með Þorgrími. Fundurinn verður í sal Brekkuskóla kl. 20:00.
Meðfylgjandi eru myndir frá heimsókninni í morgun.
Tónlistar- og leiklistarhópi unglingastigs boðið í leikhús
Fimmtudagskvöldið 16. janúar var leiklistar- og tónlistarhópi af unglingastigi Oddeyrarskóla boðið til generalprufu á uppfærslu Leikfélags Akureyrar á leikverki Davíðs Stefánssonar, Gullna hliðinu. Jafnframt var hópnum boðið að eiga samtal við leikstjóra og leikmyndahönnuð að sýningu lokinni.
Vel var mætt og nutu nemendur sýningarinnar sem er í alla staði alveg frábær. Þótt texti verksins sé þungur þá er honum gerð afar góð skil og þannig að allar kynslóðir skilja hann vel. Nemendur voru sammála um leikurinn hafi verið tilþrifamikill auk þess sem leikmynd er frábærlega hönnuð.
Kennari og nemendur sem þáðu þetta boð leikhússins eru sammála um að þessi sýning henti fólki á öllum aldri og væri þannig frábær fjölskyldustund. Þarna gefst líka tækifæri til að heiðra minningu Akureyrarskáldsins Davíðs Stefánssonar og halda í þann arf sem hann færði komandi kynslóðum.
Við þökkum leikfélagi Akureyrar innilega fyrir gott boð 🙂
Janúartengjan
Nú er Janúartengjan okkar komin í loftið. Tengjan er fréttabréf skólans og henni er ætlað að stuðla að auknu upplýsingaflæði milli heimila og skóla.
Tengjuna og eldri Tengjur má finna undir flipanum Tengja hér fyrir ofan.