Nú á haustdögum hafa nemendur í 8.-10.bekk verið að kynna sér íslenskar jurtir. Þeir höfðu algjörlega frjálsar hendur með hvernig þeir útfærðu verkefni sitt. Þrír strákar í 10. bekk ákváðu að baka fjallagrasabrauð og útbúa fjallagrasamjólk sem þeir síðan buðu skólasystkinum sínum að smakka. Veitingarnar brögðuðust ljómandi vel.
Category Archives: Fréttir og tilkynningar
Aðalfundur foreldrafélagsins
Aðalfundur foreldrafélags Oddeyrarskóla verður haldinn í matsal skólans fimmtudaginn 3. október n.k. kl. 20.00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Áætlaður fundartími er um ein klukkustund.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Stjórn foreldrafélagsins
Vikan framundan
Í þessari viku er mikið um að vera hjá okkur í skólanum. Myndataka verður þriðjudag og miðvikudag, en þá verða bekkjarmyndatökur og svo einstaklingsmyndatökur af nemendum og starfsfólki. Á fimmtudag eru fjölgreindarleikar og þá er skólahald með breyttu sniði frá því sem vant er. Nemendur þurfa ekki að koma með skólatöskur, heldur með nesti í léttum bakboka. Á föstudag er skipulagsdagur hjá starfsfólki og því eru nemendur í fríi þann dag.
Nemendur í 6. bekk heimsækja menningarhúsið Hof
Í dag, 25. september fóru nemendur 6. bekkjar í skólaheimsókn í Hof. Þau fóru í skoðunarferð um húsið, meðal annars upp á þriðju hæð þar sem þau fengu að ganga eftir ljósarám í loftinu og svo alla leið niður í kjallara. Þau hittu snjalla gervimeistara sem sýndu börnunum töfra leikhúsgerva og fengu nemendur að taka þátt í því ferli. Ragna Fossberg, sem starfað hefur við Ríkissjónvarpið til fjölda ára, fékk nokkra sjálfboðaliða úr hópi nemenda og setti á þau skegg, hárkollu eða farðaði á ævintýralegan hátt. Þá var tæknisýning þar sem tæknimenn Hofs sýndu hvað hægt er að gera með hljóði og ljósum. Börnunum var einnig boðið upp á létta hressingu. Að lokum var töfrasýning þar sem Lalli töframaður sýndi snilldartakta og var með sýningu og kennslu á töfrabrögðum.
Frábært framtak hjá Akureyrarbæ og Menningarhúsinu Hofi, kærar þakkir fyrir okkur.
RUV fjallaði um heimsóknina í fréttatíma sínum kl. 19. Fréttin hefst á tímanum 20:25: http://ruv.is/sarpurinn/frettir/25092013-28
Fleiri myndir eru komnar á myndasíðu skólans (sjá tengil efst hér til vinstri)
Nýtt nemendaráð í Oddeyrarskóla
Nú er búið að kjósa nemendaráð í Oddeyrarskóla og hefur hópurinn fundað einu sinni.
Í nemendaráði skólaárið 2013-2014 eru Sævar og Alexandra (10. bekk), Addi og Lárus (9. bekk), Birta og Óli (8. bekk), Birgitta (7. bekk) og Óskar (6. bekk). Varamaður fyrir Birgittu er Axel og varamaður fyrir Óskar eru Björg Eva.
Jónína Margrét Guðbjartsdóttir kennari mun halda utan um nemendaráð í vetur og verða fundir að jafnaði einu sinni í mánuði.
Upplýsingar um nemendaráð og fundargerðir funda eru hér á heimasíðunni undir „Skólinn“.
Samræmd könnunarpróf
Samræmd könnunarpróf í næstu viku!
Í vikunni 23. – 27. september eru samræmd könnunarpróf í 4., 7. og 10. bekk.
- Mánudagur: 10. bekkur íslenska
- Þriðjudagur: 10. bekkur enska
- Miðvikudagur: 10. bekkur stærðfræði
- Fimmtudagur: 4. og 7. bekkur íslenska
- Föstudagur: 4. og 7. bekkur stærðfræði
Nemendur eru í skólanum skv. stundarskrá. Nemendur í 10. bekk eiga að mæta í skólann klukkan 8:00 og síðan hefjast prófin stundvíslega klukkan 8:30. Nemendur í 10. bekk eru með frjálsa mætingu í valgreinar á mánudegi og þriðjudegi en skyldumæting er á miðvikudeginum.
Norræna skólahlaupið fimmtudaginn 19. september
Á morgun, fimmtudag, munu nemendur Oddeyrarskóla hlaupa í Norræna skólahlaupinu. Nemendur í 6. – 10. bekk hefja hlaupið kl. 10:00 en nemendur í 1. – 5. bekk hefja hlaupið kl. 10:45.
Á heimasíðu ÍSÍ kemur fram að Norræna skólahlaupið fór fyrst fram á Íslandi árið 1984. Allir grunnskólar á Norðurlöndunum geta tekið þátt í hlaupinu á hverju hausti.
Með norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur til að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu. Einnig er leitast við að kynna og skýra nauðsyn þess að hreyfa sig, reyna á líkama sinn og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.
Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri.
Haustkynningarfundir í Oddeyrarskóla
Á morgun verða haustkynningarfundir hjá flestum bekkjum Oddeyrarskóla og hafa foreldrar fengið boð um þá. Mikilvægt er að hver nemandi eigi fulltrúa á þessum fundum. Hlökkum til að sjá ykkur 🙂
Matartorgið opið
Nú er opið fyrir skráningu á matartorginu fyrir októbermánuð.
Hægt er að skoða matseðil októbermánaðar undir tenglinum „matseðlar“ hér fyrir ofan.
Dagur læsis
Í dag héldum við í Oddeyrarskóla upp á alþjóðadag læsis og sökktu nemendur og starfsfólk skólans sökkva sér í lestur bóka eða annars lesefnis kl. 10:50-11:10.
Alþjóðadagur læsis er sunnudaginn 8. september. Þá er boðið upp á lestrarvöfflur kl. 14-16 á Öldrunarheimilum Akureyrar – Hlíð og Lögmannshlíð. Þema dagsins er ungir – aldnir. Sjá nánar í meðfylgjandi viðhengi: Dagur læsis – sjálfboðaliðar