Októbertengjan komin út

connectingNú er októbertengjan komin í loftið. Hana má að vanda finna hér á síðunni undir flipanum Tengja.

Á þeirri síðu má einnig finna eldri Tengjur.

Heilsuvika

Vikuna 6.-10. október stóð heilsunefnd Oddeyrarskóla fyrir heilsuviku fyrir starfsmenn. Lögð var áhersla á bæði líkamlega og andlega heilsu og var ýmislegt gert til að stuðla að góðri alhliða heilsu starfsmanna. Starfsmenn tóku þátt í heilsubingói en þar þurfti fólk að framkvæma ýmsa hreyfingu eins og að hlaupa/ganga upp kirkjutröppurnar, fara í sund, hlægja, sippa og fara í planka. Kaffistofan var mjög lífleg þessa viku þar sem fólk notaði kaffitímana sína til að framkvæma ýmislegt af spjaldinu sínu.  Á mánudeginum var farið í vikulega göngu með gönguklúbb Oddeyrarskóla. Á þriðjudeginum voru grinilegir ávaxtabakkar í boði í kaffitímanum og á miðvikudeginum fengum við Hildi Eir til að koma og tala um andlega vellíðan á starfsmannafundi. Á þeim fundi var boðið upp á græn heilsuskot og heimalagaðar hollustukúlur. Á fimmtudeginum fengum við Evu Reykjalín Zumbadrottningu til að koma og vera með zumbatíma í salnum okkar. Heilsuvikunni var svo lokað með með að dregið var út eitt bingóspjald og fékk eigandi þess fallega heilsukörfu í verðlaun. Þessi vika var sérlega  skemmtileg og starfsfólk skólans tók virkan þátt í þeim uppákomum sem boðið var upp á. Fleiri myndir má sjá á myndasíðu skólans.

hjarta veifa

ADHD – Norðurland: Kynningarfundur 14. október 2014

ADHD samtökin_logoADHD samtökin á Norðurlandi eru með kynningarfund á starfsemi sinni 14. október kl. 20:00. Fundurinn er ætluðum foreldrum barna með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir.

Fundurinn er haldinn í sal Ökuskólans á Akureyri, Sunnuhlíð.

Nánari dagskrá fundarins má finna hér.

Skemmtilegur fjölgreindardagur

IMG_5884

Nemendur að byggja úr Kaplakubbum, hér reynir á sköpun, samskipti og rýmisgreind.

Hér eru nemendur í einum hópnum að koma sér fyrir í einum rúmmetra.

Hér eru nemendur í einum hópnum að koma sér fyrir í einum rúmmetra.

Í dag var fjölgreindardagur hjá okkur í Oddeyrarskóla. Nemendur fóru á átján ólíkar stöðvar sem reyndu á ólíkar greindir og hæfileika. Meðal stöðva voru Yatsy, afrísk tónlist, sögugerð, taktur og margt fleira. Nemendur voru í aldursblönduðum hópum þar sem tekið var tillit til vinapara innan vinabekkja. Elstu nemendurnir stóðu sig frábærlega sem hópstjórar þar sem þeir leiddu hópana milli stöðva og gættu yngri nemenda í kaffi- og matartíma. Krakkarnir virtust virkilega ánægðir með daginn og erum við starfsfólkið það sannarlega líka.

Fjölgreindardagur á fimmtudaginn, skipulagsdagur á föstudag

Fjögreindir Gardners_1Næstkomandi fimmtudag, 2. október, verður hinn árlegi fjölgreindardagur hjá okkur í Oddeyrarskóla. Þá verður nemendum skólans skipt í 18 aldursblandaða hópa sem fara á milli stöðva og vinna ólík verkefni. Nafnið á deginum vísar í fjölgreindakenningu Gardners, en hugmyndin er að stöðvarnar verði fjölbreyttar og reyni þannig á og þjálfi ólíkar greindir barnanna.

Við vekjum athygli á því að dagurinn er styttri en hefðbundinn skóladagur (og því gulmerktur á skóladagatali) og er dagskrá búin um hádegi. Nemendur sem eru í frístund geta farið beint þangað að skóladegi loknum. Frí verður hjá nemendum í valgreinum þennan dag.

Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir í skólann þennan dag eins og alla aðra daga!

Einnig minnum við á að föstudaginn 3. október er skipulagsdagur kennara og er því frí hjá nemendum þennan dag.

Rýmingaræfing í þessari viku

eldvarnaræfingÍ þessari viku verður rýmingaræfing í Oddeyrarskóla. Þá fer eldvarnarkerfið í gang og nemendur og starfsfólk æfa sig að rýma skólann á sem stystum tíma. Ekki láta ykkur bregða ef slökkviliðið sjáist á svæðinu þennan dag. Ef foreldrar vilja kynna sér rýmingaráætlun Oddeyrarskóla og undirbúa börn sín enn frekar má finna hana aftast í starfsáætlun skólans, sem er á heimasíðunni undir starfshættir.

Nemendur á miðstigi heimsóttu Grasrót

photo 2 photo 5Hópur nemenda í 5. 6. og 7. bekk heimsótti Grasrót í síðustu viku.  Félagið Grasrót er skapandi samfélag fyrir áhugasamt fólk sem vill þróa hugmyndir sínar með litlum kostnaði. Í heimsókninni spjölluðu krakkarnir við fólk sem vann að sínum hugðarefnum.  Þeir fengu að sjá eldsmið, vefnað, sandblástur á gler, vinnu við gömul húsgögn, rennismíði og smíði flugmódela.  Krakkarnir voru áhugasamir, kurteisir og fengu hrós fyrir. Þetta var virkilega skemmtileg heimsókn og vel tekið á móti okkur.

Þökkum Grasrótarfélaginu kærlega fyrir okkur!

Gleði í Norræna skólahlaupinu

skolahlaupÍ dag tóku allir nemendur Oddeyrarskóla þátt í Norræna skólahlaupinu. Það var góð stemning í hópnum og veðrið gott.

Við byrjuðum á því að ganga á Þórsvöllinn (1,6 km) og á vellinum hlupu krakkarnir frá þremur og upp í átján hringi. Allir stóðu sig mjög vel og vorum við sérstaklega ánægð með að allir tóku þátt og hve krakkarnir voru duglegir að hvetja skólafélaga sína!

Norræna skólahlaupið er í samstarfi við MS og fáum við send viðurkenningarskjöl eftir áramót.

Þetta var frábær dagur og vonandi verðum við svona heppin með veður að ári 🙂

Kær kveðja frá Heimi Erni íþróttakennara og öðrum starfsmönnum Oddeyrarskóla.

Norræna skólahlaupið á föstudaginn

skolahlaupNæstkomandi föstudag, 19. september, taka nemendur Oddeyrarskóla þátt í Norræna skólahlaupinu. Við förum öll saman upp á Þórsvöll og hlaupið þar, mislangt eftir aldri nemenda. Lagt verður af stað á Þórsvöllinn kl. 8:45 og áætluð heimkoma er um kl. 11. Nemendur þurfa að hafa nesti með sér í poka, góða skó til að hlaupa í og vera klædd eftir veðri. Foreldrar eru eins alltaf hjartanlega velkomnir með okkur.