Hausthátíð foreldrafélags Oddeyrarskóla verður haldin laugardaginn 12. september og hefst hún kl. 11. V
ið ætlum að leika okkur saman um stund og njóta samveru með börnunum okkar, samnemendum þeirra, starfsfólki skólans og foreldrum.
Við munum breyta út af vananum þessa hausthátíðina og í stað þess að fara í skrúðgöngu ætlum við að fara í leiki á svæðinu og jafnvel að efna til keppni á milli bekkja, foreldra eða starfsfólks skólans.
Svo minnum við á litaþema bekkjana og um að gera að þeir komi hver í sínum lit ef taka á á því í keppnin við aðra innan skólans.
1. bekkur – gulur
2. bekkur – rauður
3. bekkur – grænn
4. bekkur – blár
5. bekkur – svartur
6. bekkur – hvítur
7. bekkur – fjólublár
8. bekkur – brúnn
9. bekkur – bleikur
10. bekkur – appelsínugulur
Svo ætlar 10.bekkur að grilla pylsur ofan í mannskapinn að því loknu. Við hvetjum alla til að mæta og gera sér glaðan dag.
Andlitsmálun verður í boði frá kl. 10.30.
1. bekkur er sérlega boðinn velkominn!
Mætum öll og eigum glaðan dag,
kveðja foreldrafélagið.