Í dag, 6. febrúar er dagur stærðfræðinnar og af því tilefni var skólastarfið brotið upp. Nemendur unglingadeildar sáu um að undirbúa og halda utan um stærðfræðistöðvar víðs vegar um skólann þar sem nemendur unnu skapandi og skemmtileg stærðfræðiverkefni. Nemendur voru allir með lítið „vegabréf“ og létu stimpla á hverri stöð sem þeir heimsóttu.
Krakkarnir stóðu sig frábærlega í vinnunni, bæði eldri krakkarnir við að halda utan um stöðvavinnunna og yngri krakkarnir við að fara á milli stöðva.
Fleiri myndir eru væntanlegar á myndasíðu skólans.





ú styttist í árshátíð og standa æfingar sem hæst. Nemendasýningar verða á föstudagsmorgunn en svo er stóri dagurinn á laugardag. Þá eru sýningar kl. 13 og 16 og kaffihlaðborð foreldrafélagsins á milli sýninga. Þetta er stærsta fjáröflunarleið foreldrafélagsins og fara tekjur þess að stærstum hluta í að styðja við skólastarfið og ferðir nemenda. Því er það hagur okkar allra að fjölmenna á kaffihlaðborðið.

